Stólarnir í átta liða úrslit Lengjubikarsins þrátt fyrir naumt tap í Keflavík

Tindastóll og Keflavík mættust í hörkuleik í Sláturhúsinu suður með sjó síðastliðið föstudagskvöld. Leikurinn var kaflaskiptur í fyrri hálfleik en sá síðari var æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en í blálokin. Það voru heimamenn sem höfðu betur, 89–88, en þeir sátu þó eftir með sárt ennið því það voru lið FSu og Tindastóls sem komust í átta liða úrslit Lengjubikarsins úr B-riðli.

Ekki er annað að sjá en að Stólarnir mæti Þór í Þorlákshöfn annað kvöld í átta liða úrslitunum en Þórsarar unnu alla leiki sína í riðlakeppninni.

Leikur Keflavíkur og Tindastóls var jafn framan af en Stólarnir áttu góðan kafla undir lok fyrsta leikhluta og náðu 10 stiga forystu, 19-29. Suðurnesjamennirnar hafa löngum verið frægir fyrir 3ja stiga skotin og þeir settu fjórar slíkar niður í röð og upp úr miðjum öðrum leikhluta voru þeir komnir yfir. Heimamenn voru síðan yfir 51-48 í hálfleik.

Það var allt í járnum í síðari hálfleik og liðin skiptust á um að hafa forystuna. Darren Townes setti niður vítaskot og kom Stólunum í 70-71 fyrir lokafjórðunginn. Stólarnir náðu smá forskoti í upphafi fjórða leikhluta en Maggi Gunn sýnda gamla takta og jafnaði leikinn 80-80 þegar tæpar fimm mínútur voru eftir. Liðin skoruðu lítið næstu mínúturnar en jafnt var á flestum tölum, staðan 84-84 þegar mínúta var eftir. Síðasta mínútan var síðan æsispennandi. Stólarnir komust yfir 87-88 eftir að Downes sett niður tvö víti þegar 18 sekúndur voru eftir. Í síðustu sókn Keflvíkinga brást Magga Gunn bogalistin en Magnús Már Traustason náði frákastinu nokkuð frá körfu Tindastóls en Darrel Flake var talinn hafa brotið á honum. Hann fékk því tvö vítaskot þegar tvær sekúndur voru eftir og setti bæði niður og tryggði Keflavík því sigur, 80-88.

Darren Townes átti fínan leik fyrir Stólana, gerði 22 stig og tók 12 fráköst. Lewis var 21 stig og sjö fráköst á meðan Flake setti 17 stig og hirti 9 fráköst. Þunnskipaður hópur hélt suður fyrir hönd Stólanna, aðeins níu leikmenn á skrá.

Fleiri fréttir