Stólarnir játuðu sig sigraða eftir framlengingu í Hólminum
Tindastóll spilaði annan leik sinn í Lengjubikarnum í gærkvöldi og voru andstæðingarnir lið Snæfells. Leikið var í Hólminum og varð úr hörkuleikur sem þurfti að framlengja en á endanum sigruðu heimamenn með 2ja stiga mun, 93-91.
Leikurinn var lengstum hnífjafn og skiptust liðin á um að ná forystu í fyrsta leikhluta. Snæfell hafði þó yfir 26-22 að loknum fyrsta leikhluta en í 2. leikhluta höfðu Stólarnir betur og var staðan í hálfleik 40-39 fyrir Snæfell.
Tindastólsmenn voru sprækir í þriðja leikhluta og náðu mest 14 stiga forystu, 46-60, um miðjan þriðja leikhluta en heimamenn í Snæfelli voru snöggir að minnka þann mun og fyrir fjórða leikhluta munaði tveimur stigum, staðan 60-62.. Síðast leikhluti var æsispennandi. Stólarnir skrefinu á undan framan af en Snæfell síðustu mínúturnar. Moe Miller minnkaði muninn í 81-80 þegar skammt var eftir, Snæfell fékk tvö vítaskot og klikkaði Sheldon Hall á báðum, Miller skoraði úr tveimur vítum og kom Stólunum yfir, hann fékk síðan aftur tvö víti og setti annað niður og staðan 81-83. Snæfell jafnaði metin 83-83 og því framlengt.
Í framlengingu voru heimamenn jafnan yfir en á lokasekúndunum var það vítahittni Stólanna sem klikkaði, Helgi Rafn klikkaði á þremur af fjórum vítaskotum sem hann fékk á síðustu mínútunni, hann jafnaði leikinn 91-91 með vítinu sem fór ofaní en Jón Ólafur Jónsson tryggði Snæfelli sigurinn með því að setja tvö víti niður rétt fyrir leikslok.
Góð frammistaða í gærkvöldi dugði ekki til sigurs að þessu sinni en leikur Stólanna mikil framför frá fyrri leikjum og vonandi að leikmenn séu að finna taktinn. Vítahittni Stólanna var ekki nógu góð í gær, 62%, en 13 af 21 vítaskoti fór niður. Aðeins þrír leikmenn Stólanna fengu að spreyta sig á vítaskotum í gær og að þessu sinni var Hampton með skástu hittnina, setti niður tvö af þremur. Stólarnir hafa nú spilað tvo leiki í Lengjubikarnum og tapað báðum. Næsti leikur liðsins er hér heima gegn ÍR föstudaginn 4. nóvember. Allir í Síkið!
Stig Tindastóls: Hampton 20, Rikki 18, Moe 13, Þröstur 13, Helgi Rafn 12, Svabbi 8, Pálmi Geir 5, Helgi Freyr 2.