Stólarnir sukku í Síkinu

Stjörnumenn heimsóttu Síkið á Króknum í kvöld og höfðu betur í hörkuslag. Stólarnir höfðu ekki tapað á heimavelli síðan í haust en þrátt fyrir góða byrjun í leiknum voru of margir leikmanna liðsins ekki að ná sér á strik í kvöld og Stjarnan reyndist sterkari í síðari hálfleik og þrátt fyrir að Stólarnir hafi náð að hanga í skottinu á gestunum fram á síðustu mínútur fögnuðu Garðbæingar sanngjörnum sigri, 78-90.

Leikurinn fór fjörlega af stað og fyrstu mínúturnar fóru heimamenn á kostum. Rikki og Cunningham og Kita voru heitir og liðið náði 12 stiga forystu, 19-7. Stjarnan er hins vegar með gott lið og Justin Shouse er auðvitað alveg fjári slingur leikmaður og erfiður viðureignar og hélt hann sínum mönnum við efnið með góðum leik. Að loknum fyrsta leikhluta var staðan 21-15.

Í síðustu leikjum hafði nokkuð borið á því að erlendir leikmenn Stólanna væru að skora megnið af stigum liðsins og ljóst að Skagfirðingarnir ætluðu að bæta um betur í kvöld. Rikki og Svabbi létu til sín taka sem og Helgi Rafn en þá reyndust útlendingunum mislagðar hendur. Fain gekk illa að finna sig en kappinn hefur yfirleitt skilað sínu í síðari hálfleik þannig að stuðningsmenn Stólanna höfðu ekki áhyggjur fyrir hlé. Stjarnan náði upp góðri baráttu í öðrum leikhluta og náðu að komast yfir undir lok fyrri hálfleiks. Bæði lið voru að spila góða vörn á þessum tímapunkti og leikmenn voru að taka erfið skot, lítið var skorað í fjórðungnum sem endaði 11-16. Staðan í hálfleik 32-31 fyrir Stólana.

Góður endasprettur í fyrri hálfleik virtist fylgja Stjörnumönnum inn í þriðja leikhluta því þeir náðu fljótlega yfirhöndinni. Rikki hélt Stólunum inni í leiknum en hann og Shouse háðu bráðfjörugt einvígi í upphafi leikhlutans og voru báðir bullandi heitir. Yfirleitt munaði um 2-4 stigum á liðunum en þegar þjálfarar liðanna kipptu Rikka og Shouse útaf til að hvíla lúin bein eyddu Stólarnir miklu púðri í að reyna koma Fain inn í leikinn en hann hafði þegar þarna var komið aðeins gert 4 stig. En kappinn náði bara alls ekki að koma sér inn í leikinn, Jovan Zdravevski lokaði vel á hann og fékk góða hjálp í varnarvinnunni og hvað eftir annað lentu heimamenn í vandræðum við að klára sóknir sínar. Vendipunktur í leiknum var síðan að gestirnir náðu að gera tvær 3ja stiga körfur á síðustu 20 sekúndum leikhlutans þar sem Stólarnir fóru illa að ráði sínu, munurinn rauk í 8 stig, 53-61.

Hraðinn jókst í fjórða leikhluta og Stólarnir minnkuðu fljótlega muninn í 4 stig. En sóknarleikurinn var ekki upp á marga fiska og Stjörnumenn gáfu hvergi eftir. Það var helst Rikki sem skilaði niður skotum en Fain náði loks að klóra inn nokkur stig. Leikurinn var engu að síður spennandi og heimamenn ekki tilbúnir að gefast upp. Munurinn fór niður í 5 stig þegar rétt rúmar 2 mínútur voru eftir en þá urðu Stólarnir að fara að tefla djarft í vörninni og reyna að klára sóknir sínar sem fyrst en í kvöld reyndust gestirnir sterkari og þeir skoruðu nokkrar auðveldar körfur úr hraðaupphlaupum og af vítalínunni í lokin og sigruðu með 12 stiga mun. Lokatölur 78-90.

Einn stuðningsmanna Tindastóls sagði við undirritaðann áður en leikurinn hófst að heimastrákarnir yrðu að gera 40 stig í kvöld. Sem þeir einmitt gerðu en því miður þá fann enginn erlendu leikmanna liðsins fjölina sína. Cunningham var stigahæstur þeirra með 17 stig en skotnýtingin var langt í frá góð, hann setti t.d. aðeins niður eitt skot í 8 3ja stiga tilraunum. Fain skaut lítið og virtist varla hálfur maður og þá var Kitanovic fjarri sínu besta í sókninni. Rikki var stigahæstur með 20 stig og var í góðum gír. Svabbi átti fína innkomu og þá reif Helgi Rafn niður 17 fráköst og hefði átt að muna um minna.

Hittni gestanna var betri í kvöld og þar var Shouse í sérflokki en sá kappi gerði 27 stig og misnotaði aðeins 3 skot í leiknum.Stjörnumenn tóku aðeins 12 3ja stiga skot og settu 6 niður á meðan að Stólarnir hittu úr 7 skotum í 31 tilraun af sama færi.

Stig Tindastóls: Rikki 20, Cunningham 17, Fain 11, Kita 10, Svabbi 9, Helgi Rafn 9 og Helgi Freyr 2.
Stig Stjörnunnar: Shouse 27, Lindmets 14, Zdravevski 13, Marvin 12, Daníel 9, Fannar 6, Guðjón 5 og Ólafur 4.

Tindastóll er nú í áttunda sæti í Iceland Express-deildinni og liðið komið í hörkuslag um sæti í úrslitakeppninni. Næsti leikur liðsins er á sunnudaginn í Hveragerði en þá væri gott fyrir Stólana að rífa sig upp. Leikurinn í kvöld var ekki nógu góður hjá liðinu. Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir