Stolið í Skagafirði, endaði utanvegar í Húnavatnssýslu
Lögreglan á Blönduósi handtók þrjá menn í dag sem höfðu tekið bifreið ófrjálsri hendi í Skagafirði, ekið henni vestur yfir sýslumörk á leið sinni til Reykjavíkur, en endað utanvegar. Ökumaður sem var ölvaður viðurkenndi brot sín án undanbragða og telst málið þar með upplýst.
Engin slys urðu á fólki en bíllinn er mikið skemmdur.