Stórleikur á Sauðárkróksvelli í kvöld
feykir.is
Uncategorized
30.06.2015
kl. 09.18
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu tekur á móti liði KF, Knattspyrnufélags Fjallabyggðar, á Sauðárkróksvelli kl. 20.00 í kvöld. Lið Tindastóls situr í 11. sæti deildarinnar með sex stig og KF í því 9. með átta stig. Þetta er því mikilvægur leikur og um að gera að mæta á völlinn í kvöld.
"Þessi lið hafa oftar en ekki háð miklar rimmur og svo verður ekki ólíklega í kvöld. Hlynur Hlöðversson sem hefur staðið í marki TIndastóls í síðustu leikjum hefur einnig spilað með KF, enda á strákurinn ekki litla tengingu þangað. Við hvetjum alla til að koma á völlinn í kvöld, vonandi í blíðskaparveðri," segir um leikinn á Stuðningsmannasíðu knattspyrnudeildar Tindastóls á Facebook.