Stórleikur í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
03.02.2014
kl. 09.04
Leikur Tindastóls og ÍR í Powerrade-bikarnum hefst klukkan 19:15 í kvöld í Síkinu. Þessi undanúrslitaleikur er síðasta hindrunin fyrir Laugardalshöllina og stefna Stólarnir ótrauðir þangað. Á heimasíðu Tindastóls eru allir hvattir til að mæta á leikinn, enda þarf liðið á því að halda.
Á þennan leik gilda ekki árskort og verður aðgangseyrinn sá sami og á aðra leiki, 1500.kr og 500kr fyrir börn. Það er því ekkert annað að gera en að taka kvöldið frá og mæta í síkið og skemmta sér langt fram á kvöld og styðja strákana