Stórt tap gegn Aftureldingu
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hjá Tindastól/Hvöt lagði leið sína suður um heiðar um og mætti liðið Aftureldingar í 3.umferð Íslandsmótsins. Ekki var ferðin til fjár en strákarnir máttu þola stórt tap á útivelli eða 0 - 5.
Svona er skrifað um leikinn á heimasíðu Tindastóls;
"Liðið þurfti sárlega á stigum að halda fyrir leikinn, en við vorum án stiga og vorum að mæta sterku liði Aftureldingar sem hafði fyrr í vetur sigrað okkur í úrslitaleik Lengjubikarsins, og áttum við því harma að hefna.
Byrjunarlið okkar var: Gísli í markinu, Ingvi og Arnar Skúli bakverðir, Milan og Donni miðverðir, Árni Einar var djúpur miðjumaður og Atli og Dejan þar fyrir framan. Arnar Sigurðsson og Benni voru á köntunum og Kolli Kára var fremstur.
Á bekknum voru Maggó, Böddi, Árni Arnars, Hilmar og Hallgrímur
Leikurinn fór rólega af stað en okkar menn voru þó sterkari aðilin og voru að spila vel og skapa sér ágætis færi. Síðan á 11 mín lenda Milan og framherji Aftureldingar í kapphlaupi um boltann sem endar með því að Milan rekst klaufalega í leikmann Aftureldingar og vítaspyrna dæmd, mörgum fannst þetta ansi strangur dómur að flauta vítaspyrnu, en hver og einn getur dæmt fyrir sig með því að kíkja á brot úr leiknum hér að neðan.
Þarna hefði maður viljað að okkar menn settu trukk í það að jafna leikinn en erfiðlega gekk að skapa sér færi á þessum tíma.
Hinsvegar var leikurinn ennþá í jafnvægi og ekkert benti til þess að Afturelding myndi skora næsta mark. Ekki vorum við beint sáttir með annað mark leiksins en þá er brotið á einum leikmanni okkar og dómarinn beitir hagnaði og boltinn berst strax aftur til þeirra og þar með hagnaður brotsins farinn fyrir lítið, upp úr þessu skora síðan Afturelding. Dómarinn leiksins fer eftir þetta til leikmanna og biður þá afsökunar og segjist ,,taka þetta á sig”. En óhætt er að segja að varnarleikur okkar í þessu marki hafi ekki verið uppá marga fiska.
Eftir þetta lifnaði yfir strákunum, við komumst í nokkra fína möguleika en erfiðlega gekk samt að binda endahnútin á sóknirnar.
En þegar við náum ekki inn þessu marki þá er okkur refsað og það gera þeir með fínni sókn. Mistök okkar í þessari sókn er sú að ekki skila allir leikmenn sem eiga að gera það, til baka og sóknarmaður Aftureldingar stendur einn rétt fyrir utan teig og leggur hann snyrtilega í netið.
Staðan í hálfleik 3-0 og á brattan að sækja. Afturelding fá heldur betur óskabyrjun í upphafi seinni hálfleiks þegar Snorri Helgason á laust skot á Gísla markmann sem misreiknar boltann skelfilega og hann endar í netinu.
Áður en leikurinn er úti þá bæta Afturelding við marki, eða réttara sagt sjáum við um að skora fyrir þá, En Ingvi Hrannar verður fyrir því óláni að skora stórglæsilegt sjálfsmark þegar hann ætlar að hreinsa boltann í burtu.
Lokatölur leiksins urðu því 5-0. Líklegast til full stórt miðað við gang leiksins en engu að síður vann betra liðið. Afturelding kom með baráttu í leikinn sem við náðum ekki að jafna. Einnig nýttu þeir sín færi mjög vel ásamt því að við sáum um að gefa þeim nokkur mörk.
Alltof margir leikmenn voru að spila undir getu í þessum leik og geta bætt sig mikið fyrir næsta leik. Í rauninni var aðeins einn leikmaður sem spilaði á eðlilegri getu, en það var okkar lang besti maður í leiknum, Atli Arnarson.
Við vonum bara að leikmenn leggji sig alla fram á æfingum vikunnar og komi tilbúnir og með rétt hugarfar í næsta leik svo við getum farið að innbyrða okkar fyrstu stig.
Þetta lið fór í úrslitaleik Lengjubikarsins og hefur alla burði til að gera góða hluti í þessari deild, það er bara að grafa upp þennan anda sem var í liðinu í vorleikjunum og koma með hann inn í sumarið."