Stuð og stemning á Landsbankamóti

Tæplega fimm hundrið keppendur víðs vegar að af landinu tóku um helgina þátt í Landsbankamóti stúlkna í knattspyrnu. Það voru stelpur á aldrinum 6 – 12 ára sem þarna öttu kappi og voru veðurguðirnir heldur skárra skapi þessa helgina en dagana á undan og eftir og ber að þakka það.

Á laugardagskvöldið var kvöldvaka í Grænuklauf áður en þreyttir keppendur fóru að hvíla sig fyrir átök sunnudagsins en mótinu var síðan slitið um miðjan sunnudag þar sem Friðrik Dór söng fyrir stelpurnar.

.

Fleiri fréttir