Sturlunga á sunnudagsmorgni
Félagar á Sturlungaslóð í Skagafirði hittast vikulega í Áshúsi í Glaumbæ á sunnudagsmorgnum og lesa saman úr Sturlungu. Um þessar mundir er verið að lesa Sturlu sögu sem fjallar um bragðarefinn Hvamms-Sturlu, sem Sturlungar eru kenndir við.
Blaðamaður Feykis brá sér bæjarleið í blíðunni síðasta sunnudag og tók þátt í upplestri, en þar eru allir velkomnir, hvort sem þeir vilja lesa, taka þátt í samræðum eða bara hlusta á upplesturinn. Notalegt umhverfið í Áshúsi er vel við hæfi og setti birtan skemmtilegan svip á myndirnar sem hér fylgja.
Að sögn félaga Á Sturlungaslóð virðist sem einhver vakning eigi sér stað og er sífellt að fjölga í hópnum sem mætir í upplesturinn. Lesturinn hefst kl. 10:30 og stendur til kl. 12. Í hádeginu er svo hægt að kaupa sér ljúffengan heimilismat í Áshúsi. Fylgjast má með dagskránni á vefsíðu Sturlungaslóðar.