Styðja óskir um yfirtöku á rekstri HS
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki lýsa heilshugar yfir stuðningi við óskir sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar um að yfirtaka rekstur stofnunarinnar með samningi við ríkið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hollvinasamtökunum.
Hollvinasamtökin skipar stór hópur íbúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps sem bera hag stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir íbúum Skagafjarðar fyrir brjósti. Stofnunin er ein af mikilvægari grunnstoðum samfélagsins og ómetanlegt það öryggi sem hún veitir.
Í tilkynningunni kemur fram að það sé eindreginn vilji til þess Heilbrigðisstofnunin fái áfram að sinna sínu mikilvæga hlutverki í sömu mynd og verið hefur og ekki verður séð að það verði öðru vísi tryggt en með því að heimamenn sjálfir sjái um reksturinn.
„Hollvinasamtökin skora á heilbrigðisráðherra, aðra ráðherra og þingmenn að ljá því lið að heimamenn taki að sér reksturinn svo tryggja megi að heilbrigðisþjónusta í Skagafirði verði áfram með þeim myndarbrag sem hún hefur verið undanfarna áratugi, þrátt fyrir niðurskurð síðustu ára,“ segir loks í tilkynningunni.