Styrkir í Húnaþingi vestra
Félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra sem hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að nú er tíminn til að sækja um þar sem Sveitarstjórn vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir aðalsjóð og fyrirtæki sveitarfélagsins fyrir árið 2013.
Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem veittur var styrkur til á árinu 2012 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun fjárframlags ársins 2012, segir á heimasíðu Húnaþings vestra.
Umsóknir um styrki eða fjárframlög á árinu 2013 skulu hafa borist sveitarstjóra eigi síðar en 5. október nk. Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar. Ekki er tekið við umsóknum í tölvupósti.