Styrkir úr Húnasjóði afhentir
Byggðarráð Húnaþings vestra fjallaði um umsóknir um styrki úr Húnasjóði á fundi sínum þann 31. júlí sl. Að þessu sinni bárust sjö umsóknir um styrk en fimm þeirra uppfylltu skilyrði til úthlutunar.
Styrkirnir voru afhentir þann 16. ágúst sl. á kaffihúsinu Hlöðunni og var það Ingveldur Ása Konráðsdóttir, formaður byggðarráðs, sem sá um afhendinguna.
Þeir sem hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni, hver um sig kr. 100 þúsund, eru eftirtaldir:
Albert Jóhannsson, nám til Bs í viðskiptafræði.
Guðrún Lára Magnúsdóttir, nám til diploma í jákvæðri sálfræði.
Ingunn Elsa Rafnsdóttir, félagsliðanám.
Jóhannes Geir Gunnarsson, nám í búfræði.
Unnur Jóhannsdóttir, nám til Bs í búvísindum.
Á vef Húnaþings vestra segir um sjóðinn: „Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra. Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.