Styrkir úr orkurannsóknarsjóði
Í gær var tilkynnt um styrkveitingar úr Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar. Markmið sjóðsins er m.a. að veita styrki til námsmanna, rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.
Ekki verður annað sagt en að umsóknum frá Háskólanum á Hólum hafi verið vel tekið. Stefán Óli Steingrímsson hlaut styrk til verkefnis um breytileika flæðis í straumvatni og hvernig það hefur áhrif á virkni innan sólarhrings - fæðunám og vöxt laxfiska. Bjarni K. Kristjánsson fékk áframhaldandi styrk til rannsókna á þeim þáttum sem hafa áhrif á fjölbreytileika íslenskra ferskvatnsfiska.
Auk þess hljóta tveir nemar við Háskólann á Hólum styrki til rannsóknarnáms síns. Þetta eru þau Daniel P. Govoni, sem er í doktorsnámi við háskóla í Alaska en nýtur leiðsagnar hér, og Doriane Combot, meistaranemi í sjávar- og vatnalíffræði.
Frá þessu er greint á vef Hólaskóla.