Styrktar-WOD í Crossfit 550

Næsta laugardag verður svokallað styrktar-WOD í Crossfit 550 á Sauðárkróki. Það virkar þannig að á milli 12 og 16 verða æfingar á um það bil 30 mínútna fresti, þar sem allir geta komið og verið með og látið gott af sér leiða í leiðinni.
Það kostar 1000 kr. á mann og allur ágóði rennur beint til fjölskylduhjálpar í Skagafirði. Einnig verður tekið við frjálsum framlögum.
„Dragðu vinina, fjölskylduna eða vinnufélagana og hjálpaðu okkur í leiðinni að gleðja aðra. Allir sem mæta geta átt von á glaðning. Allir eru velkomnir, ekki bara þeir sem æfa í Crossfit 550“ segir í tilkynningu frá Ernu Rut og Sunnu Björk hjá Crossfit 550.