Sumarkoma Lóuþræla

Karlakórinn Lóuþrælar fagnar sumarkomu með söng og leik í Félagsheimilinu á Hvammstanga, fimmtudaginn 5. maí, kl. 21:00. Dagskrá kvöldsins er sett saman úr “best of” 25 ára starfsferli kórsins, en kórinn hélt upp á 25 ára afmæli sitt síðastliðið ár.

Kaffiveitingar verða að hætti Lóuþræla, með kaffi og veglegum veitingum. Hljómsveit kórsins spilar undir í völdum lögum á tónleikunum.

Hljómsveitina skipa:

  • Elínborg Sigurgeirsdóttir - píanó
  • Páll Sigurður Björnsson - bassi
  • Skúli Einarsson - trommur
  • Stjórnandi kórsins er Guðmundur St. Sigurðsson
  • Undirleikari, Elínborg Sigurgeirsdóttir
  • Um einsöng sér Guðmundur Þorbergsson

Aðgangseyrir er kr. 2.500 - Frítt fyrir 14 ára og yngri

Ath. Ekki posi á staðnum

Verið öll velkomin og gleðjumst með kátum kórfélögum

Karlakórinn Lóuþrælar.

Fleiri fréttir