Sumarslátrun á Hvammstanga
Norðlenskir bændur tóku vel boði Sláturhúss KVH á Hvammstanga um að hefja sumarslátrun viku fyrr en venjulega. Mbl.is greinir frá þessu.
Á mánudag var slátrað þar 530 lömbum og verður kjötið sent ófrosið til Bandaríkjanna til að lengja sölutímann í verslunum Whole Foods.
Magnús Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri sláturhússins, segir hafa rennt blint í sjóinn í samtali við Mbl en undirtektir verið vonum framar. Ætlunin var að slátra 500 lömbum að þessu sinni og skilaði það sér og aðeins meira til.