Sund í kvöld og uppskeruhátíð á morgun

Í tilefni uppskeruhátíðar Neista verður sundlaugin á Hofsósi opin í kvöld til kl. 21:00. Í tilkynningu eru allir hvattir til að taka forskot á hátíðina og skella sér í sund. Uppskeruhátíð Umf. Neista á Hofsósi verður tileinkuð og til styrktar Magnúsi Jóhannessyni, sem slasaðist alvarlega fyrr á árinu og hefst hún klukkan 20:30 laugardagskvöldið 5. nóv. í Höfðaborg.

 

Allur ágóði kvöldsins rennur til kaupa á göngustoðtækjum (spelkum) fyrir Magga, en með þeim gefst honum kostur á að standa í fæturna og ganga, með aðstoð, auk þess að þjálfa vöðva í fótum og koma í veg fyrir beinþynningu.

Kynnir er fyrrverandi leikmaður og þjálfari Neistamanna og núverandi sveitarstjóri í Borgarbyggð, Páll Brynjarsson og aðrir kappar félagsins munu einnig sjá um að gestir skemmti sér hið besta.

Að skemmtidagskrá lokinni, verður slegið upp stórdansleik þar sem hin óþekkta en að öllum líkindum frábæra  hljómsveit, Varamenn, kemur fram í þetta eina sinn og sér um stuðið langt fram á nótt.

Aðgöngumiðar á skemmtun og ball eru seldir við innganginn, ath. að ekki er hægt að kaupa miða á ballið eftir kl 23:00. Hægt er að kaupa miða á dansleik í forsölu á Veitingastaðnum Hard Wok á Sauðárkróki, í Sundlauginni Hofsósi og í KS á Hofsósi.

Einnig er hægt að panta miða á ballið hjá Ingu Jónu s. 867 8675, Hörpu s. 847 0547 og Línu s.

893 5349.

Fleiri fréttir