Sundlaugarpartí, árekstrar og pústrar við Mælifell

Lögreglan á Sauðárkróki hafði nóg að gera um helgina en fjörið byrjaði fyrir utan Mælifell þar sem smá pústrar voru á milli ballgesta. Því næst var lögreglan kölluð að sundlauginni á Sauðárkróki þar sem hópur ungmenna hafði slegið upp sundlaugarpartíi.

Á laugardag voru síðan tveir árekstrar. Annar þeirra var í Sæmundarhlíð og varð mikið eignartjón á bílum. Ökumaður annars bílsins var ekki í bílbelti og slasaðist minniháttar auk þess sem tvö börn sem voru í bílnum voru eitthvað lemstruð. Ökumann hins bílsins sem var í öryggisbelti sakaði ekki.

Að öðru leiti var helgin svo við notum orðalag lögreglunnar nokkuð róleg bara.

Fleiri fréttir