Sundlaugin á Hvammstanga 30 ára

Sundlaugin á Hvammstanga fagnar 30 ára afmæli á árinu og stendur til að halda upp á þau merku tímamót sunnudaginn 9. september. Samkvæmt heimasíðu Húnaþings vestra ætlar sundlaugin að bjóða upp á kaffi og kökur en þá verður einnig frítt í sund og þrektækjasal.

„Vonumst til að sjá sem flesta!“ segir í tilkynningu frá starfsfólki sundlaugarinnar á Hvammstanga.

 

Fleiri fréttir