Sundlaugin í Varmahlíð opnar að nýju
feykir.is
Skagafjörður
21.05.2015
kl. 15.28
Nú geta áhugamenn um Sundlaugina í Varmahlíð tekið gleði sína að nýju því búið er að opna laugina að nýju eftir fjögurra vikna viðgerðartörn. Að sögn Moniku Borgarsdóttur sundlaugarstjóra er sundlaugin nú hrein og fín og því ekki neitt annað í stöðunni en að drífa sig í sund.
Núna um hvítasunnuhelgina er laugin opin laugardag og mánudag frá kl. 10 til 15 en lokað er á hvítasunnudag.