Sundlaugin opnar í Varmahlíð

Sundlaugin í Varmahlíð.
Sundlaugin í Varmahlíð.

Vakin er athygli á því að sundlaugin í Varmahlíð opnar í dag miðvikudaginn 4. júní kl. 12:00, eftir tímabundna lokun vegna viðhaldsvinnu segir á vef Skagafjarðar.

Laugin hefur nú fengið nauðsynlegt viðhald og er tilbúin að taka á móti gestum á ný og sumaropnun tekin í gildi. Margir hafa eflaust beðið eftir þessu enda sundlaugin vinsæl og mikið sótt. 

Sumaropnunin er eftirfarandi:

Mánudaga - föstudaga kl. 12:00 - 21:00

Laugardaga - sunnudaga kl. 10:00 - 18:00

Fleiri fréttir