Sungið af hjartans list
Það hefur verið líf og fjör hjá nemendum Söngskóla Alexöndru undanfarið en góðir gestir frá Litháen, Skólakórinn "Allegro" frá Kaunas, hafa verið í heimsókn og fengið að kynnast íslenskri menningu á lifandi hátt. Hafa gestirnir verið í heimagistingu hjá kórfélögum og notið þar dvalarinnar vel.
Í Húsi frítímans hafa verið starfræktar smiðjur þar sem búnir eru til dansar, söngvar sungnir og margt fleira skemmtilegt gert. Skoðaðir hafa verið forvitnilegir staðir í Skagafirði og er verkefnið allt tengt náttúrunni á einn eða annan hátt.
Kórarnir hafa einnig komið fram á tónleikum í Hóladómkirkju og í dag 1. nóvember kl. 17:00 verða haldnir Vinatónleikar kóranna tveggja í Húsi frítímans. Frítt er inn, en allir eru velkomnir að styrkja ferðasjóð Söngskólans