Sungu í Skagfirðingabúð

Eins og fram kom á Feyki.is var Dagur leikskólans í gær. Af því tilefni fóru börnin í leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki í heimsókn í Skagfirðingabúð og sungu þar fyrir gesti og gangandi.

Fjölmargir stöldruðu við og hlustuðu á söng barnanna sem m.a. höfðu æft þorralag. Blaðamaður Feykis brá sér einnig í búðina og smellti meðfylgjandi myndum af þessum flotta krakkahóp.

Fleiri fréttir