Svakalegt „show“ í Sæluviku
Sæluvikutónleikar verða haldnir í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki þann 1. maí næstkomandi. Nú eru fjögur ár liðin frá því að hin vinsæla Dægurlagakeppni var á Sæluviku og nú hefur verið ákveðið að blása til stórtónleika á ný – þar sem haldið verður í dægurlagahefðina.
„Ég hef verið að skipuleggja Gæruna tónlistarhátíð og mér fannst tilvalið að gera eitthvað meira í Skagafirði. Nú eru komin fjögur ár síðan eitthvað var gert í Íþróttahúsinu í Sæluvikunni, ég ákvað því að taka slaginn og setja upp Sæluvikutónleika,“ sagði Adam Smári Hermannsson skipuleggjandi tónleikana í samtali við Feyki.
Adam Smári vann við Dægurlagakeppnina á sínum tíma og segist hafa fundið fyrir miklum meðbyr þegar hann viðraði hugmyndir sínar um að skipuleggja tónleikana í Sæluviku. Hann fundaði með sveitarstjóra Svf. Skagafjarðar og ræddi við forsvarsmenn fyrirtækja og ýmsa listamenn til að koma að tónleikunum.
„Það er sami hópurinn og stendur að Gærunni sem aðstoðar mig. Svo hef ég fengið nokkra stóra styrktaraðila til liðs við mig; td. Bílaleigu Akureyrar og Vífilfell. Svo styður sveitarfélagið við okkur og Binný í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki ætlar að annast miðasölu á Króknum en einnig verður hægt að nálgast miða á Tix.is.“
Gömul og góð íslensk dægurlög
Á tónleikunum stígur stórskotalið söngvara á svið og flytur íslenskar dægurlagaperlur, þau Jógvan Hansen, Eurovisionfarinn Alma Rut úr Vestanáttinni, Rúnar Örn úr Sixties og Birgitta Haukdal.
„Við förum alveg töluvert aftur í tímann með íslensk dægurlög. Birgitta Haukdal ætlar t.d. að taka Ort í sandinn eftir Geirmund Valtýsson, hún sagðist ekki vera búin að heyra það lag í 20 ár og vildi endilega taka það,“ sagði Adam Smári. Heimamenn munu heldur ekki að láta sig vanta og má nefna Róbert Óttarsson, Sigvalda Gunnarsson og Kristján Gíslason.
Adam Smári segir allt stefna í svakalegt „show“, hann eigi von á 40 feta gám fullum af búnaði til að gera tónleikana sem glæsilegasta. Meðal þess er stór LED skjár, sem m.a. hefur verið notaður í Ísland got Talent á Stöð 2, og verður lifandi grafík á skjánum meðan á tónleikunum stendur sem gerir enn meira úr „show-inu“, að sögn Adams Smára. Þannig að það verður ekki bara ljósabúnaður sem mun gera þessa upplifun stórkostlega.
Adam Smári vonast til að sjá sem flesta koma og skemmta sér á tónleikunum og að þetta verði upphafið að árvissum viðburði í Sæluviku Skagfirðinga.