Sveitapiltsins draumur (eða bara martröð?)
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
19.03.2015
kl. 09.26
Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli Félagsheimilisins Höfðaborgar mun fjöldi skagfirskra listamanna flytja frumsamið leikverk í bland við létta dægurtónlist sem Sönglagasveitin flytur ásamt söngvurum.
Þessi skemmtun verður haldin í Höfðaborg á Hofsósi á skírdagskvöld, 2. apríl kl. 21:00. Aðeins verður ein sýning og eru miðapantanir í síma 893-0220. Miðaverð er krónur 3.000.