Sveitarfélagið aðstoðar eldri borgara

Félagsþjónusta sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur ákveðið að liðsinna eldri borgurum á Hofsósi sem eiga erfitt aðdrætti í kjölfar brunans í verslun KS á Hofsósi á meðan Kaupfélagið kemur sér upp bráðabirgða aðstöðu á staðnum.

Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að aldraðir á Hofsósi og eða nágrenni sem eru í þörf fyrri slíka þjónustu, hafa ekki bifreið til umráða eða geta ekki heilsu sinnar vegna ekið um langan veg til að versla eru beðnir að hafa samband við Ráðhús Skagafjarðar í síma 4556080 og óska eftir akstri.

Þá eru nágrannar og ættingjar beðnir að koma þessum upplýsingum á framfæri hver við annan eða leggja inn skilaboð í Ráðhúsið ef þeir vita af einhverjum sem telja að þurfi á þessu að halda.

Fleiri fréttir