Sveitarfélagið óskar eftir samstarfsaðilum að VIT 16 - 18 ára

Frístundasvið Skagafjarðar auglýsir á heimasíðu sveitarfélagsins eftir fyrirtækjum sem vilja vera samstarfsaðilar í atvinnuátaki 16-18 ára í sumar.

Í átakinu felst að fyrirtæki ráða til sín ungmenni á þessum aldri í a.m.k. 6 tíma vinnu á dag að lágmarki í 6 vikur.Fyrirtækjum er greiddur 50% launakostnaðarins. Ungmennin þurfa að sýna fram á að þau hafi sótt um starf annarsstaðar en verið synjað. Einnig þurfa þau að sækja um að komast í verkefnið . Umsóknareyðublöð er að finna á www.husfritimans.is Nánari upplýsingar veitir Stefán Arnar yfirmaður Vinnuskólans í síma 6604685 , eða á netfangið vinnuskoli@skagafjordur.is

Fleiri fréttir