Sveitarfélagið styrkir Sögusetur íslenska hestsins
Á fundi atvinnu-menningar- og kynningarmálanefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær var samþykkt að styrkja starfsemi Söguseturs íslenska hestsins um sem nemur áætlaðri hlutdeild í launakostnaði frá 1. júní til ágústloka, eða um 800.000 kr.
Nefndin harmaði jafnframt að ekki hefði fengist styrkur til starfsemi Sögusetursins hestsins frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu undanfarin tvö ár og leggur til að ný stjórn setursins taki upp viðræður við ráðuneytið að nýju um þau mál.
Á sama fundi var tekið fyrir erindi frá Sigríði Sigurðardóttir þar sem hún baðst lausnar sem fulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar í stjórn Söguseturs íslenska hestsins ses. Samþykkt var að leggja til að Gunnsteinn Björnsson taki sæti aðalmanns í stjórn setursins og Sólborg Una Pálsdóttir sæti varamanns.