Sveitarstjórinn ánægður með Landsmótið
Í gær lauk frábæru Landsmóti Hestamanna á Vindheimamelum í blíðu veðri. Er það mál manna að vel hafi tekist til með alla umgjörð og hestakosturinn verið góður. Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar var á mótinu og fannst eins og mörgum það hafa gengið einstaklega vel.
Sagt er að fyrir þau landsmót sem haldin eru í Skagafirði geri Dúddi heitinn á Skörðugili allt sem hann geti „hinum megin“ til að hafa áhrif á veðrið og stóð hann í ströngu í upphafi mótsviku sem endaði með mikilli blíðu og margan sólbrunann hjá gestum. -Það rættist úr veðrinu. Við getum ekki beðið um neitt betra, segir Ásta og minnist mótssetningarinnar á fimmtudeginum en þann dag rofaði til, öllum til mikillar gleði.
Ásta er ánægð með hestakostinn og sérstaklega hjá unga keppnisfólkinu. –Mér finnst vera mikill fjöldi af flottum hrossum, mikið magn af góðum hrossum og knöpum. Unga fólkið er orðið svo vel ríðandi, keppa á mikilum gæðingum. Ég var svolítið upptekin af þessu strax á fimmtudaginn og það finnst mér standa upp úr á þessu móti. Þess vegna held ég að þetta hafi verið hárrétt ákvörðun að halda mótið í ár því ég held að þörfin hafi verið orðin svo mikil hjá fólki að komast á mót.
Ásta segir að Landsmót hafi ýmiskonar áhrif á Skagafjörð s.s. eins og á ferðaiðnaðinn, þjónustugeirann og atvinnugreinina í heild sinni. –Hrossarækt, hrossamennska, tamningar og annað því tengt er orðin stór atvinnugrein hér í Skagafirði og getum ekki horft framhjá því. Svo megum við ekki gleyma Hólaskóla. Ég held að þetta sé góð tenging þar inn. Það er alltaf vilji hjá stjórnvöldum að loka, þjappa saman eða loka háskólum og við verðum að standa saman og standa vörð um Hólaskóla.