Sveitarstjórn Húnaþings vestra vill mannaða lögreglustöð á Hvammstanga

Sveitarstjórn Húnaþings vestra ítrekar þær kröfur sem fram hafa komið frá sameiningu lögregluumdæma 2014 um mannaða lögreglustöð á Hvammstanga. Mynd: KSE.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra ítrekar þær kröfur sem fram hafa komið frá sameiningu lögregluumdæma 2014 um mannaða lögreglustöð á Hvammstanga. Mynd: KSE.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra lagði á fundi sínum síðast liðinn fimmtudag fram bókum um löggæslu í héraðinu. Byggðarráð hafði áður fjallað um málið á fundi 5. september, í kjölfars þess að tvær klukkustundir liðu frá því að útkall barst þar til lögregla kom á vettvang á Hvammstanga.

Í bókun sem lögð var fram á fundinum segir meðal annars: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra tekur undir áhyggjur byggðaráðs af óviðunandi stöðu og fámenni lögreglunnar á Norðurlandi vestra.“ Þá ítrekar sveitarstjórn þær kröfur sem komið hafa fram allt frá því að lögregluumdæmi voru sameinuð árið 2014, að á Hvammstanga verði mönnuð lögreglustöð til að sinna því stóra svæði sem sveitarfélagið nær yfir.

„Viðbragðstími lögreglu þegar alvarleg atvik eiga sér stað er eins og dæmin hafa sannað með öllu óviðunandi og veldur því að hætta skapast og íbúar upplifa óöryggi. Við það verður ekki búið lengur.“ Þá kemur fram í bókunni að til að hægt sé að manna lögreglustöð á Hvammstanga þurfi að fjölga í lögregluliði umdæmisins alls og gerir sveitarstjórn kröfur um að svo verði gert hið allra fyrsta.

Fleiri fréttir