Sveitasæla 2018

Sveitasæla 2018, landbúnaðarsýning og bændahátíð, verður haldin laugardaginn 18. ágúst í reiðhöllinni Svaðastöðum í Skagafirði. 

Dagskráin er mjög metnaðarfull og allir ættu að finna eitthvað við hæfi. Í boði verður meðal annars húsdýragarður, sveitamarkaður – Beint frá býli, Leikhópurinn Lotta, Gunni og Felix, Hvolpasveitin, heitjárningar, smalahundasýning, kálfasýning, hrútadómar/hrútaþukl og véla- og fyrirtækjasýning.

Veitingasala verður á vegum Kiwanisklúbbsins Freyju, en allur ágóði rennur til góðra málefna í heimabyggð.

Enn er hægt að panta fyrirtækjabása og handverksborð, en þeir sem vilja panta slíkt er bent á að hafa samband við Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur í síma 659 9016 eða með tölvupósti á vordisin@gmail.com.

Aðgangur á Sveitasælu er ókeypis og verður sýningin opin frá kl. 10:00 - 17:00. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir