Synt yfir Hrútafjörð
„Síðastliðinn þriðjudag syntu yfir Hrútafjörð frá Gilsstöðum til Borðeyrar Baldur Pálsson 27 ára, Ásta Snæbjörnsson 20 ára og Hulda Pétursdóttir 16 ára, öll frá Borðeyri. Vegalengdin er um 1100 metrar og synti Hulda hana á 23 mínútum og var um 6 mínútum á undan hinum. Sjávarhiti var 8 stig. Ekki er kunnugt um að áður hafi verið synt yfir Hrútafjörð,“ segir í frétt í Morgunblaðinu 27. ágúst 1937.
Þann 24. ágúst nk. eru liðin 75 ár frá því þessi þrjú ungmenni þreyttu sundið yfir Hrútafjörð og af því tilefni ætla afkomendur og fjölskyldur sundfólksins að koma saman á Borðeyri og heiðra minningu þeirra laugardaginn 25. ágúst.
„Það er von okkar að þetta verði ánægjuleg samverustund afkomenda Ástu, Baldurs og Huldu, enda eigum við það öll sameiginlegt að í hvert skipti sem við keyrum Hrútafjörðinn segjum við: „Mamma/pabbi, amma/afi synti fyrst yfir Hrútafjörð!!!“ segir Steinunn Hjartardóttir, afkomandi Ástu Jónsdóttur.
Athöfn hefst kl. 13 á tanganum á Borðeyri þar sem komið verður fyrir skildi sem segir frá þessu merkisafreki. Næst verður farið í Tangarhúsið þar sem sundfólkinu frænka verður minnst með orðum og myndum, ásamt því að afhenta Minjasafninu á Borðeyri innrammað skjal um afrekið.
Þá geta þeir sem hafa áhuga endurtekið afrekið og synt yfir, þeir eru þó vinsamlegast beðnir um að láta vita tímanlega, sama gildir um þátttöku á mótinu, fyrir 21. ágúst í netföngin: steinunn@hnv.is (afkomendur Ástu), nannasigga@simnet.is (afk. Baldurs) og laxmadur@hive.is (afk. Huldu).