Synti yfir Miðfjörð
Það er ekki á hverjum degi sem björgunarsveitirnar á Íslandi fá skemmtileg verkefni í hendurnar en það gerðist síðastliðinn laugardag er Björgunarsveitin Húnar í Húnaþingi vestra fylgu sundkappa yfir Miðfjörð. Frá þessu segir á Facebooksíðu björgunarsveitarinnar.
Sundkappinn er Gunnlaugur Egilsson en fór hann frá landi á Heggstaðarnesi og kom aftur að landi við Framnes. Þar tók nokkur fjöldi við honum enda nokkuð merkilegur áfangi því þetta er í fyrsta skipti sem synt hefur verið yfir Miðfjörðinn. Vegalengdin er 2.700 metrar og var hitastigið í sjónum 12 gráður. Gunnlaugur var 1.32 klst. á leiðinni og gekk sundið vel.