Tap fyrir Hamarsmönnum í gærkvöldi

Tindastóll tapaði í gærkvöldi fyrir Hamri í IEX-deildinni í körfubolta 83-81. Þetta var fyrsti sigurleikur Hamars í átta leikjum sem komu sér upp í níunda sætið. Á heimasíðu Tindastóls  segir að heimamenn hafi ávallt verið skrefinu á undan í leiknum og fór  hinn bandaríski leikmaður þeirra Devin Sweetney á kostum.

Tindastóll náði að jafna leikinn 81-81 og fengu tækfæri til að klára leikinn sem ekki tókst.

Tindastóll hefur tapað tveimur síðustu leikjum sínum sem hefur reynst þeim afar dýrt í kapphlaupinu við að komast í 8 liða úrslitin.  Tindastóll situr nú sem fyrr í 8. sæti og á fjóra leiki eftir, gegn KR, Fjölni, Keflavík og Njarðvík og því ljóst að á brattann er að sækja. Næsti leikur Tindastóls er heimaleikur gegn KR þann 25. febrúar.

Tölfræði leiksins

Staðan í deildinni

Fleiri fréttir