Tap gegn Fjarðabyggð

Tindastóll/Hvöt lék sinn fyrsta heimaleik á Blönduósi á laugardag en það má með sanni segja að veðurguðirnir hafi ekki leikið við liðin en mikið rok og aðeins tveggja stiga hiti var á Blönduósi á leikdag og sátu áhorfendur í bílum sínum á meðan strákarnir reyndu að spila knattspyrnu við mjög svo erfiðar aðstæður.

Það voru leikmenn Fjarðarbyggðar sem voru fyrstir til þess að heimsækja okkur þetta vorið og tóku þeir stigin þrjú með sér austur eftir 2 – 1 sigur á okkar mönnum. Höfum við því þar sem af er voru misst sex stig austur á firði og ljóst að við munum eiga harma að hefna í síðari umferð.

Á heimasíðu Tindastóls er skrifað um leikinn. „Við fengum óskabyrjun þegar Kolbeinn Kárason komst inn fyrir vörn Fjarðabyggðar eftir fína sendingu frá Óskari Vignis. Kolbeinn laumaði boltanum framhjá markverðinum og kom okkar mönnum yfir 1-0. Við byrjuðum með vindinn í bakið og láum mikið á Fjarðabyggð án þess að ná að skapa okkur sérstaklega góð færi. Þetta voru hálffæri þar sem sendingar og hlaup fóru ekki saman.

Sóknir okkar manna fóru flestar upp hægri kantinn en erfiðlega gekk að koma boltanum inn í teig þaðan vegna mikils mótvinds. Boltinn var einnig mikið útaf vellinum og óþarflega oft í háloftunum. Fjarðabyggð sóttu ekki mikið í fyrri hálfleik en fengu eitt gott færi eftir klúður í vörn okkar manna.

Í hálfleik var staðan 1-0 fyrir okkar mönnum og við klaufar að ná ekki að nýta okkur sóknaryfirburði okkar og skora fleiri mörk.

í seinni hálfleik komu leikmenn Fjarðabyggðar mjög ákveðnir til leiks og unnu baráttuna á vellinum. framanaf í seinni hálfleiknum vorum við að gera mjög lítið sóknarlega enda uppskárum við ekki neitt.

Fjarðabyggð skorar síðan mark eftir aukaspyrnu utan að kanti en aðdragandi aukaspyrnunar var sá að boltinn átti að hafa farið í hönd Atla sem fáir sáu nema línuvörðurinn. Það afsakar það ekki að okkar menn áttu að koma tuðrunni í burtu eftir arfaslaka sendingu fyrir markið. Þetta gerist á 57 mín og staðan orðin 1-1.

Eftir þetta voru Fjarðabyggð með yfirhöndina í leiknum án þess þó að skapa sér færi. Þeir fengu hinsvegar færi á 68 mín og nýttu sér það til fullnustu og komust í 2-1.

Við gerðum breytingar eftir þetta og settum meiri kraft í sóknina og var allt annað að sjá liðið þá. Miklu meiri kraftur sóknarlega en eins og fyrr í leiknum þá vantaði herslumuninn, bæði að klára sendingar inní box og þegar það gekk þá vantaði réttu hlaupin.

Einn leikmaður Fjarðabyggðar fékk að líta rauða spjaldið á 81. mínútu fyrir fólskulegt olnbogaskot á Bjarka Má.

Ágætur dómari leiksins; Valdimar Pálson flautðai leikinn af og úrslitin 1-2 fyrir Fjarðabyggð og við án stiga. Óhætt er að segja að við höfum verið frekar lánlausir í þessum tveim leikjum. Fengum mark á okkur undir lokinn gegn Hetti þar sem um klára rangstöðu var að ræða og töpum núna gegn Fjarðabyggð þar sem þeir nýttu sín 2 af 3 færum sínum í leiknum.

En þá er bara að rífa sig upp, berjast og bæta leik okkar þannig að við getum farið að innbyrða okkar fyrstu stig.

Áfram Tindastóll/Hvöt“

Fleiri fréttir