Tap gegn Snæfelli í Hólminum
Tindastóll lék gegn meisturum Snæfells í Stykkishólmi í gærkvöldi. Leikurinn var fjörugur og spennandi en heimamenn höfðu þó lengstum frumkvæðið, voru sjö stigum yfir í hálfleik og þrátt fyrir ágæta spretti hjá Stólunum þá svöruðu heimamenn jafnan fyrir sig og unnu að lokum með 99 stigum gegn 85.
Stólarnir keyrðu upp hraðann í byrjun en Snæfellingar létu ekki taka sig í bakaríið á eigin heimavelli og komust í 7-2 en síðan jöfnuðust leikar og staðan að loknum fyrsta leikhluta var 18-18. Í öðrum leikhluta hikstaði sóknarleikurinn hjá gestunum og náðu Tindastólsmenn aðeins að gera 12 stig fram að hléi. Jafnræði var þó með liðunum fram í miðjan leikhlutann, staðan 26-26 en þá hresstust heimamenn og höfðu smá andrými í leikhléi, leiddu 37-30.
Stólarnir mættu baráttuglaðir til leiks eftir hlé og jöfnuðu 37-37 en Adam staldraði víst stutt við í Paradís og sömu sögu má segja af Stólunum því Snæfellingar svöruðu með því að gera næstu 9 stig. Þá fann Rikki skyndilega fjölina sína og setti niður þrjú 3ja stiga skot en lögreglumaðurinn var síðan sendur inní klefa eftir að hafa krækt sér í óíþróttamannslega villu sem hann fylgdi eftir með tæknivillu. Skarð fyrir skildi en Stólarnir gáfust ekkert upp og höfðu betur í fjörugum leikhluta, gerðu 32 stig gegn 31 stigi Snæfells, og því 6 stiga munur fyrir fjórða leikhluta, staðan 68-62 heimamönnum í hag.
Upphaf fjórða leikhluta var líkt og þeim þriðja, nú minnkuðu Tindastólsmenn muninn í tvö stig, 68-66 en heimamenn hrukku þá í gírinn og gerðu næstu 13 stig og virtust hafa tryggt sér sigurinn. Stólarnir voru þó ekki alveg af baki dottnir og náðu enn góðum kafla og minnkuðu muninn í 5 stig, 86-81. Þá tók Daníel Kazmi upp á því að skora tvo þrista og einu körfur sínar í leiknum og tækifærið rann úr greipum Stólanna. Lokatölur 99-85 fyrir Snæfell.
Hjá heimamönnum var Sean Burton í miklum ham í leiknum og setti niður 35 stig, Jón Ólafur gerði 25 stig og tók 11 fráköst og þá gerði Pálmi Sigurgeirs 16 stig. Hjá Tindastólsmönnum var Kita í stuði, gerði 30 stig, tók 9 fráköst og stal 6 boltum. Hann naut þess að Amaroso var ekki með Snæfellingum og átti því hægara um vik. Fain skilaði 24 stigum, 10 fráköstum 4 stolnum boltum og þá setti Cunningham niður 9 stig og átti 6 stoðsendingar og stal 5 boltum. Hlýtur hreinlega að vera boltalaust í Stykkishólmi eftir þessa heimsókn!?
Það er áhyggjuefni fyrir Stólana að aðeins 6 leikmenn voru að skila körfum í gærkvöldi og reyndar aðeins 7 leikmenn sem skutu á körfuna. Þá var hittni heimamanna utan 3ja stiga línunnar til fyrirmyndar en þeir settu niður 13 skot af 27 en það eru 39 stig. Á móti settu Stólarnir niður 5 skot í 18 tilraunum eða 15 stig alls. Þá var slæmt að þrátt fyrir að vera án miðherja síns, Amaroso, þá voru heimamenn að frákasta talsvert meira en Stólarnir, hirtu 39 fráköst gegn 31.
Stig Tindastóls: Kita 30, Fain 24, Rikki 11, Cunningham 9, Helgi Rafn 8, Hreinsi 3.
Stóri leikurinn er síðan á morgun gegn KR í bikarnum en leikið er í DHL-höllinni og hefst leikurinn kl. 16:00. Stuðningsmenn Tindastóls eru hvattir til að rífa sig upp og fjölmenna á undanúrslit í bikar. Oft var þörf en nú er nauðsyn!