Tap hjá M.fl.kvenna í bikarnum
Í gær 1. júní spilaði Tindastóll við Völsung á Húsavík, við góðar aðstæður. Lið Tindastóls byrjaði leikinn illa og var í miklum erfiðleikum fyrstu 20 mínútur leiksins. Þar sem Völsungur stjórnaði leiknum og komst Völsungur yfir á 12. mínútu, staðan 1-0.
En síðan tók Tindastóls lið heldur betur við sér og sýndi einstaklega góðan leik. Þar sem liðið sundurspilaði Völsung hvað eftir annað en þrátt fyrir mörg góð færi, þá tókst ekki að koma boltanum inn. Þar sem markmaður Völsungs varði oft vel og skotin hjá Tindastóli hittu ekki markið.
Á 69. mínútu skorar Völsungur mark úr langskoti mjög svo gegn gangi leiksins, en Tindstólsliðið gafst ekki upp og hélt áfram að sækja en inn vildi boltinn ekki.
Síðan á loka mínútu leiksins á þeirri 92. samkvæmt vallarklukku þá bætir Völsungur við þriðja markinu. Kemur það í kjölfar þess að Tindastólsliðið hafði tekið áhættu með því að fjölga stúlkum í sókninni. Lokatölur leiksins 3-0.
Tindastólsstúlkur sýndu einstaklega góðan og vel spilaðan leik í gær og geta þær borið höfuðið hátt eftir þennan leik. Það er mjög jákvætt að Tindastóll mætir Völsungi aftur á Húsavík í næsta leik, þann 7. júní og þar verður gott tækifæri fyrir stúlkurnar að kvitta fyrir þennan ósigur.
Áfram Tindastóll
Byrjunarlið
Tóta (M), Fríða, Sunna(F), Thelma, Svava Rún, Snæja, Helga, Rakel Svala, Laufey Rún, Brynhildur og Guðný Þóra.
Bekkur
Fanney Birta, Harpa Sif, Kristín Halla, Margrét Alda og Sigríður Vava.
Skiptingar
Fanney Birta og Sigríður Vava inn fyrir Brynhildi og Snæju á 60. mín
Harpa Sif inn fyrir Helgu á 75. mín