Tap í fyrsta leik Íslandsmótsins
Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli spilaði sinn fyrsta leik í 2. deildinni á Íslandsmótinu sl. sunnudag. Leikurinn fór fram í Boganum á Akureyri þar sem Tindastólsmenn tóku á móti Leikni Fáskrúðsfirði og lokatölur leiksins voru 2-1 fyrir Leiknismönnum.
Leikmenn Leiknis komust fljótt á skrið í leiknum og á 6. mínútu leiksins skoraði Fernando Castellanos fyrsta markið. Eftir það sóttu Tindastólsmenn hart að Leiknismönnum og fengu víti á 30. mínútu. Það var Ragnar Þór Gunnarsson sem skoraði örugglega úr vítinu og jafnaði stöðuna fyrir Tindastól. Staðan í hálfleik var því 1-1.
Mikil barátta var í síðari hluta leiksins en á 84. mínútu skoraði Hilmar Freyr Bjartþórsson fyrir Leikni og kom þeim yfir. Þrátt fyrir mikla hörku náðu Tindastólsmenn ekki að jafna og voru því lokatölur leiksins 2-1 fyrir Leikni F.
Næsti leikur hjá Stólunum verður laugardaginn 16. maí á Njarðtaksvellinum í Njarðvík. Þar mæta strákarnir liði Njarðvíkinga og hefst leikurinn kl. 14:00.