Tap í fyrsta leik Lengjubikarsins

M.fl. kvenna Tindastóls spilaði á sunnudaginn sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum gegn Völsungi  í Boganum á Akureyri. Fyrri hálfleikurinn var ekki sérstakur hjá Tindastólsstúlkum og leiddi Völsungur 1-0 í hálfleik.

Á heimasíðu Tindastóls segir að seinni hálfleikurinn hafi verið virkilega vel leikinn hjá Tindastólsstúlkunum þar sem liðið tók öll völd á vellinum og sótti án afláts. Umdeild atvik átti sér stað þegar 15 mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum sem óhætt er að segja að höfðu stór áhrif á leikinn.  Fyrra atvikið er þannig að Tindastóll fær aukaspyrnu fyrir utan vítateig Völsungs og dæmir dómarinn óbeina aukaspyrnu án þess að nokkur leikmaður viti af því og heldur ekki höndinni upp til marks um óbeina aukaspyrnu.  Rabbý tekur spyrnuna og skorar en dómarinn dæmir markið af, vegna þess að spyrnan hafi verið óbein.  En hvort sem spyrnan var bein eða óbein, þá snerti markmaðurinn boltann á leiðinni í markið og hefði því markið átt að standa.

Hitt atvikið kemur nánst í kjölfarið á hinu.  Þá kemur sending inn á miðjan vallarhelming Tindastóls, þar sem Rabbý tekur boltann greinilega á kassann en fær dæmda á sig hendi.  Og upp úr þeirri aukaspyrnu urðu Tindastólsstúlkur fyrir því óhappi að skora sjálfsmark og staðan því orðin 2-0 fyrir Völsung.  Samkvæmt Tindastóll.is baðst dómari leiksins afsökunar á mistökum sínum í markinu sem hann dæmdi af Tindastól en það hjálpar víst lítið í stigasöfnuninni.

En þrátt fyrir allt þá heldu Tindastóls stúlkur áfram að sækja en erfiðlega gekk að binda endahnútinn á sóknirnar enda varnarpakki Völsungs orðinn ansi þéttur.  Þegar fór að líða á leikinn var meira kapp lagt á að reyna að jafna leikinn og það kostaði sitt því Völsungur komst í skyndisókn og skoraði þar sem dekkningin hjá okkar stúlkum klikkaði.  Staðan orðin 3-0.  En Tindastólsstúlkur lögðu ekki árar í bát og Rabbý skoraði laglega úr aukaspyrnu, staðan 3-1.  En lengra komust stúlkurnar ekki og urðu það lokatölur leiksins.

Ef liðið spilar eins og það gerði í seinni hálfleiknum þá þarf liðið engu að kvíða.  Því boltinn gekk vel á milli manna, baráttan og viljinn til að vinna var klárlega til staðar.

/Tindastóll

Fleiri fréttir