Tap í Hveragerði
Leikmenn Tindastóls/Hvatar spiluðu við lið Hamars í gær en ágætis gangur hefur verið á sameinuðum upp á síðkastið eftir erfiða byrjun í 2. deildinni. Þeir urðu þó að sætta sig við að fara stigalausir frá Hveragerði en heimamenn tryggðu sér sigurinn undir lok leiksins og skelltu sér í leiðinni á toppinn í 2. deildinni í skamma stund. Lokatölur 2-1.
Í frétt á Fótbolti.net segir að hvasst hafi verið fyrir sunnan og lítið markvert hafi gerst í fyrri hálfleik. Heldur lifnaði yfir leiknum í síðari hálfleik og komust Hamarsmenn yfir á 52. mínútu með marki Arnþórs Inga Kristinssonar. Heimamenn hefðu getað bætt við mörkum í kjölfarið en smátt og smátt náðu gestirnir að komast betur inn í leikinn, föst leikatriði Tindastóls/Hvatar voru hættuleg og eftir hornspyrnu á 82. mínútu náði Arnar Sigurðsson að jafna metin. Heimamenn voru hinsvegar snöggir að ná yfirhöndinni á ný því Björn Ívar Björnsson gerði sigurmarkið aðeins þremur mínútum síðar eftir hornspyrnu.
Lið Tindastóls/Hvatar er nú í áttunda sæti 2. deildar en næsti leikur liðsins er gegn Árborg og fer sá leikur fram á Blönduósvelli föstudaginn 24. júní kl. 20:00. Allir á völlinn - áfram TH!