Tekið til kostanna 30. apríl
Stórsýningin Tekið til kostanna verður haldin laugardaginn 30. apríl nk. og hefur verið auglýst eftir gæðingum, kynbótahrossum, mjög fljótum skeiðhestum eða góðri hugmynd að sýningaratriðum. Á heimasíðu reiðhallarinnar Svaðastaðir eru þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni beðnir að hafa samband við Eyþór í síma: 8425240 eða Elvar Einarsson í síma: 8938140.
Tekið er fram að einungis koma til greina úrvals góð hross og er fólk kvatt til þess að taka þessari bón vel því samtaka verður gerð flott og góð sýning.
Eyþór Jónasson reiðhallarstjóri segir að mörg atriði séu þegar komin á dagskrána og það stefni í góða og fjölbreytta sýningu.
-Reiðkennarabraut Hólaskóla verður með sína dagskrá á laugardeginum en hún er mjög metnaðarfull og fróðleg og kynbótasýning verður á föstudeginum og yfirlitssýning á laugardagsmorgninum, segir Eyþór.