Tekið til Kostanna hápunktur hestahelgar á Króknum

Forsala á stórsýninguna Tekið til kostanna, í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki er hafin hjá N1 á Sauðárkróki. Miðaverð er 2500.- krónur. Dagskráin hefst á kynbótasýningu á föstudaginn kl. 10:00 á félagssvæði hestamannafélagsins Léttfeta sem er við reiðhöllina. Á laugardeginum hefst dagskráin á yfirlitssýningu kynbótahrossa kl. 10:00 og að henni lokinni heldur dagskráin áfram inn í reiðhöllinni.

Kl. 13:00 er kennslusýning reiðkennarabrautar Háskólans á Hólum þar sem margt mjög athyglisvert verður sýnt og kennt. Stórsýningin Tekið til Kostanna hefst svo kl. 20:00 (húsið opnar kl. 19:00). Sýningin verður mjög fjölbreytt og skemmtileg þar sem ungir sem aldnir munu sýna gæðinga sína.

Meðal annars koma fram á sýningunni stórgæðingurinn Kiljan frá Steinnesi, hinar stórgóðu húnvetnsku Dívur, Grettir frá Grafarkoti ásamt dóttur sinni, Fróði frá Staðartungu, kynbótahross, Eyfirsku Gæsirnar, Hrannar frá Flugumýri, Vafi frá Ysta-Mói, afkvæmahópar, ræktunarbúshópar og margt fleira sem auglýst verður síðar. Eftir sýningu munu stórgóðir skagfirskir skemmtikraftar halda uppi gríðar stemningu.

Fleiri fréttir