Telja að fólki sé mismunað eftir búsetu

Á síðasta fundi byggðarráðs Húnaþings vestra var lagður fram undirskriftalisti, þar sem mótmælt er boðaðri breytingu á innheimtu fyrir síðdegisgæslu í grunnskóla svæðisins sbr. bréf skólastjóra grunnskólans til foreldra grunnskólabarna frá 26. ágúst s.l. Í bréfinu kemur fram að gera eigi tilraun til að bjóða foreldrum barna í 1.-6. bekk er búa í dreifbýli upp á gjaldfrjálsa gæslu tvo daga í viku.

 

Telja undirskrifendur listans að verið sé að mismuna fólki eftir búsetu og mótmæla þessari tilraun. Með tilliti til þess að verið er að seinka heimakstri þessa tvo daga og þess að börnin eru á ábyrgð skólans taldi byggðarráð ekki ástæðu til að breyta 6 vikna auglýstu fyrirkomulagi á gjaldtöku fyrir síðdegisgæslu.

Fleiri fréttir