Telur ekki tímabært að skipa í byggingarnefnd fyrir Árskóla
Á sveitastjórnarfundi hjá Sveitarfélaginu Skagafirði sem haldinn var gær lagði Sigurjón Þórðarson fram bókun vegna skipunar byggingarnefndar fyrir Árskóla. Sigurjón telur ótímabært að skipa í nefnd sem ætlað er að undirbúa stórframkvæmdir sem auka muni skuldbindingar sveitarfélagsins sem ekki sé gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Segir í bókun Sigurjóns að það blasi við að forsenda þess að farið verði í frekari fjárfestingar sé sú að náð verði tökum á hallarekstri sveitarfélagsins með hagræðingu