Telur sameiningu ekki tímabæra
Barnavernd Skagafjarðar telur ekki tímabært að til starfa taki ein sameiginleg barnaverndarnefnd fyrir Norðurland vestra.líkt og stjórn SSNV hefur lagt til.
Telur nefndin að undirbúa þurfi slíka aðgerð betur en gert er í fyrirliggjandi skýrslu stjórnar SSNV sem fylgdi tillögunni. Nefndin telur fjárhagslegan og faglegan ávinning af sameiningu ekki ljósan. Nefndin telur að málið þurfi frekari meðferð innan aðildarsveitarfélaga SSNV