Það er líf í Hrútadal

Þann 13. ágúst næstkomandi verður efnt til málþings í félagsheimilinu að Ketilási í Fljótum en síðasta sumar var þar haldið málþing um Guðrúnu frá Lundi undir heitinu „Er líf í Hrútadal“. Það reyndist svo sannarlega vera og nú verður leikurinn endurtekinn en nú undir heitinu „Það er líf í Hrútadal“.

Á málþinginu verða verk Guðrúnar frá Lundi og annarra skagfirskra sagnaskálda krufin. Fyrir hlé munu nokkrir fyrirlesarar heiðra þingið og eru prófessor Baldur Hafstað, Hallgrímur Helgason rithöfundur og Álfdís Þorleifsdóttir nemi í bókmenntafræði þeirra á meðal. Eftir hlé verður landsmót leshópanna.

Í hléi mun Jón Ormar Ormsson stýra stuttum leikþætti eftir Ingibjörgu Hjartardóttur sem er brot úr degi Guðrúnar frá Lundi. Honum til halds og traust verður einvalalið skagfirskra áhugaleikara.

Dagskrá:

Svandís Svavarsdóttir, menntamálaráðherra setur málþingið.

Baldur Hafstað, prófessor: Skagfirsk sagnamenning - frá Stephani G. til Haralds Bessasonar

Hallgrímur Helgason, rithöfundur: Kona fer undir vatn.

Álfdís Þorleifsdóttir, meistaranemi í íslensku: Hjónabandssæla

Brot úr degi Guðrúnar frá Lundi, leikþáttur eftir Ingibjörgu Hjartardóttur í leikstjórn Jóns Ormars Ormssonar. Leikendur eru Elsa Jónsdóttir og Bragi Haraldsson.

Landsmót leshópanna. Til leiks er skráður einn hópur undir stjórn Soffíu Auðar Birgisdóttur bókmenntafræðings og Hrundar Ólafsdóttur leikskálds. Í umræðum er vonast eftir að fleiri leshópar láti ljós sitt skína.

Aðgangseyrir er 1.500 krónur fyrir málþing og kaffiveitingar. Síðan verður slegið upp harmonikkuballi um kvöldið þar sem andblær hins liðna fær að njóta sín. Ballið byrjar kl. 22:00 og stendur til 02:00, eins og var siður hér á árum áður.

Félagsheimilið Ketilás í Fljótum í Skagafirði fylltist af fólki síðasta sumar og þá sagði menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir m.a.: Það er alltaf sama sagan með Guðrúnu, hún slær alltaf öll met og átti þar bæði við þær vinsældir sem skáldkonan átti að fagna á 5. 6. og 7 áratug síðustu aldar en einnig við þann fjölda sem sótti málþingið í fyrra, margir um langan veg. Og nú vonast menn til að Guðrún slái enn eitt metið.

Fleiri fréttir