„Það er nánast allt hægt að endurnýta“
Anna Margret Valgeirsdóttir, grunnskólakennari á Blönduósi, er mikil áhugamanneskja um umhverfi og endurvinnslu. Hún er þeirrar skoðunar að okkur beri að nýta allt sem hægt er að nýta og skila jörðinni sómasamlega til afkomenda okkar.
Til að leggja sín lóð á vogaskálarnar heldur hún úti Facebook-síðunni Endurvinnsluhornið og saumar innkaupapoka, ávaxtapoka og fleira úr efnum sem flest eru úr vefnaðarvöruverslun sem móðir hennar rak í Vestmannaeyjum. Nýjustu afurðirnar eru svo jólapokar sem leysa eiga jólapappír af hólmi.
„Ég tek aldrei plastpoka og hef ekki gert það í mörg ár,“ segir Anna Margret. „Þetta snýst um skipulag. Maður er með innkaupapokann kláran, setur grænmetispokann ofan í hann og setur svo innkaupapokann út í bíl. Maður fer alltaf á bílnum í búðina. Smám saman verður þetta jafnmikil rútína og að taka peningaveskið með sér,“ segir Anna Margret m.a. í viðtali í nýjasta tölublaði Feykis.
Þess má geta að pokar frá endurvinnsluhorninu, ásamt ýmsu spennandi handverki úr Skagafirði, verða til sölu á markaði í matsal FNV í dag kl. 17-21:30.