„Það er skylda að halda upp á Þjóðhátíðardaginn"
feykir.is
Skagafjörður
16.06.2015
kl. 16.18
„Að venju efnum vér, Agnar á Miklabæ og Ragnar í Hátúni, til ferðar á gömlum bílum. Ferðin hefst í Varmahlíð kl 10 að morgni þjóðhátíðardagsins. Vér bjóðum alla sem eiga fornbíla (25 ára og eldri) velkomna með.
Vér ökum að Miklabæ og hlýðum þar á messu kl. 11, ökum að Héðinsminni og fáum oss hressingu. Þaðan liggur leið alla leið á Sauðárkrók,“ segir í tilkynningu frá „Gömlu nefndinni sem birt var í síðasta Sjónhorni.