Það er vandlifað drengur minn
Bjarni Har sem stundum er kallaður Gamli bónusinn eða jafnvel Bæjarstjórinn í norðurbænum á Sauðárkróki ætlar að selja gula sendibíllinn sinn sem ber einkennistafina SK 24. Bjarni segir hann tilvalinn fyrir hestamennina sem þurfa að koma hrossum milli staða og jafnvel einhverjir á Landsmótinu sem gætu þurf á honum að halda.
-Þetta er Volkswagen TDI 146, með lyftu segir maður, í góðu standi, nýjar bremsur, ekinn 200þúsund á mæli en búið að taka upp vél. Hann er þægilegur og hentar fyrir margt og alveg upplagt fyrir hestamenn að lyfta þeim upp. Það væri hægt að flytja 5-7 hesta ef vel verði innréttað, segir Bjarni sem hefur átt bílinn nokkuð lengi og hefur þjónað honum vel. –Ekkert betra, fyrir utan konuna!
Bjarni sem lengi rak vöruflutningaþjónustu segist vera að fækka bílunum hjá sér, þeir séu tveir til sölu í viðbót, einn stærri og einn af fólksbílsstærð.
Þó kalt hafi verið lengi segir Bjarni að þónokkrir ferðamenn hafi rekið inn nefið í búðina og verslað við hann en einn brást undarlega við um daginn er Bjarni ætlaði að aðstoða hann. –Ég hélt ég væri með orðabók og rétti manninum hana en það hýrnaði ekkert yfir honum. Og þegar hann var farinn tók ég eftir því að þetta hafði verið Nýja-testamentið. Ég var svo hissa að hann kunni ekki að meta þetta eftir að hann hafði skoðað bókina. Já, það er vandlifað drengur minn.