„Það gerist eitthvað töfrum líkast þarna í Bifröst“

Tónleikarnir Villtir svanir og tófa hafa nú um nokkurt skeið verið árviss viðburður í Bifröst á Sauðárkróki. Þar koma saman „gamlir Skagfirðingar sem hafa verið að vinna við tónlist og eru nú staðsettir út um hvippinn og hvappinn,“ eins og Þórólfur Stefánsson, einn af skipuleggjendunum orðar það. „Við hittumst einu sinni á ári og höfum gert það í sex ár.“

Þórólfur segir tónleikana einungis ánægjunnar vegna en þó ríki gríðarlegur metnaður varðandi tónlistarflutninginn. „Þetta er grasrótahreyfing, tónleikarnir eru ókeypis og það er sjálfsafgreiðsla á guðaveigum. Það skapast þarna gamla góða stemningin úr félagsheimilinu Bifröst,“ segir Þórólfur.

Hann segir heitið, Villtir svanir og tófa komið úr laginu Það er svo geggjað, sem alltaf sé spilað einu sinni á hverjum tónleikum. „Annars er þetta öll flóran, allt frá ljúfum dægurlögum eftir Erlu Þorsteins og Ömmubæn upp í graðasta rokk,“ eins og hann kemst að orði.

Að sögn Þórólfs hafa bönd með sérkennileg nöfn á borð við Tríó Pilla prakkó, Dætur Satans og Synir Þórólfs komið framá tónleikunum og látið ljós sitt skína, sjálfum sér og öðrum til ánægju. „Þetta er orðinn nokkuð fastur kjarni en þeir sem vilja og geta tekið þátt eru velkomnir. Það er kannski til dæmis um fjölbreytnina og skemmtilegheitin við þetta allt saman að kirkjuorganistinn er þarna að koma fram með Dætrum Satans,“ segir Þórólfur og hlær.

Þórólfur segir að tónleikarnir séu ævinlega sömu helgi og Lummudagar og fái að fylgja með dagskrá þeirra. Sjálfur kemur Þórólfur árlega frá Svíþjóð og telur það ekki eftir sér. „En trommuleikarinn hefur komið alla leið frá Úrúguvæ, hann getur því miður ekki verið með núna.“

Þórólfur segir viðtökurnar hingað til öldungis góðar. „Mætingin er svo frábær. Það gerist eitthvað þarna, á þessum stað, þegar við hittumst, er galdur,“ segir hann. „Fólk er farið mæta snemma til að tryggja sér sæti og stemningin er mjög afslöppuð.“

Fleiri fréttir